Á döfinni

<<  Janúar 2010  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
       1  2
  3  4  5  6  7  8  9
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31      

Nýlegar myndir

Innskráning



Velkomin á ippon.is
Komdu í júdó núna Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Knús á Vigni og VilhelmJúdó er frábært sport sem hentar þér. Hjá Júdódeild Ármanns æfir fólk á öllum aldri, frá 4 ára og uppúr, byrjendur og besta keppnisfólk landsins. Áherslunar eru undir þér komnar. Hvort sem þú villt stunda skemmtilega og öfluga líkamsrækt eða reyna að ná langt á keppnisvellinum. Júdó er íþrótt sem reynir á úthald, liðleika, úthald, tækni og andlegan styrk og býr auk þess yfir frábærri sjálfsvarnartækni.

Æfingar á haustmisseri hefjast mánudaginn 30.8. skv. tímatöflu.

Yngstu börnin (4-5 ára) fá að kynnast íþóttinni í hreyfingu og leik. Börn 6-9 ára og 10-13 ára læra undirstöðuaðtriði og auka færni sína, rækta sál og líkama með hollri hreyfingu. Unglingar 13-16 ára læra líka undirstöðuatriði og auka við getu sína og færni. Auk þess er lögð rík áhersla á aga í formi virðingar fyrir þjálfurum, félögum og umhverfi. Fullorðnir og einstaklingar eldri en 16 ára fá tækifæri til að stunda frábæra líkamsrækt í formi tækni-, þrek- og styrktarþjálfunar hvort sem áherslan er á heilsubót og skemmtun eða kepppnismennsku.

Kynntu þér efnið að heimasíðunni okkar og skráðu þig í júdó. Sendu fyrirspurn ef þú vilt vita meira. Kíktu líka við hjá okkur í Laugabóli og spjallaðu við þjálfara og aðra sem eru á staðnum.

Velkomin í júdó hjá Júdódeild Ármanns.

 
Hauststarfið að hefjast Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 28 Ágúst 2010 14:05
Nú er starfið að fara á fulla ferð aftur. Allir flokkar fara á fulla ferð skv. tímatöflu frá og með mánudeginum 30.8.2010. 
 
Maya Staub Norðurlandameistari! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 12 Maí 2010 22:41

Norðurlandamótið í júdó fór fram í Laugardalshöllinni helgina 8. – 9. maí. Íslendingar eignuðust 4 Norðurlandameistara og unnu að auki til fjölda annarra verðlauna. 


LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
Aðalfundur Glímufélagsins Ármanns 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 17 Mars 2010 22:10

Aðalfundur Glímufélagsins Ármanns fer fram þann 24. mars næstkomandi. Á fundinum fer fram kjör til stjórnar félagsins. Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í störfum stjórnar er bent á að senda póst á formann uppstillingarnefndar, Vilborgu í pósti 6903458(hjá)gmail.com.

Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi okkar öfluga félags eru hvött til að hafa samband og bjóða fram krafta sína.

LAST_UPDATED2
 
Æfingabúðir í Gouren og Backhold Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 25 Júlí 2010 16:16
Æfingabúðir í Back-hold og Gouren
dagana 3.-5.sept 2010
í Ármannsheimilinu
Skell

Dagana 3.-5. september næstkomandi mun Glímusamband Íslands í samstarfi við Glímufélagið Ármann standa fyrir æfingabúðum í  Keltneskum fangbrögðum, þ.e. Back-hold og Gouren.

Í Gouren verður hinn Franski  Bertrand  Le Hellaye  þjálfari.  Bertrand  hefur þjálfað í mörg ár  á vegum  Franska Gourensambandsins og verið þjálfari á mörgum alþjóðlegum æfingabúðum.
 
Back-hold þjálfari  verður Englendingurinn  David Atkinson margfaldur alþjóðlegur meistari og einn tæknilega besti Back-hold maður heimsins í mörg ár.
 
Skráning: Ath að skrá sig fyrir 10. ágúst! 

Þeir sem vilja taka þátt í þessum æfingabúðum og nýta sér þekkingu og reynslu þessara  frábæru þjálfara er bent á að skrá sig hjá Glímusambandi  Íslands  á  netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 893-3707 fyrir 10.ágúst næstkomandi.   Þátttökugjald  er  5000 kr.
 
Júdómenn úr Ármanni athugið:
Júdómönnum úr Ármanni er boðið á æfingabúðirnar sér að kostnaðarlausu. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að láta þetta frábæra tækifæri ekki fram hjá sér fara! 
 
 
 
Íslandsmótið 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 12 Apríl 2010 22:41
Íslandsmótið í júdó var haldið í Laugardagshöll laugardaginn 10. apríl síðastliðinn. Það er skemmst frá því að segja að Ármenningar stóðu sig frábærlega á mótinu og unnu til hvorki meira né minna en þriggja fjórðu allra gullverðlauna eða 9 af 12 mögulegum!
Lesa meira...
 
Foreldrafundur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 11 Mars 2010 21:27

Mánudaginn 15. mars kl. 18:00 verður fundur fyrir foreldra/forráðamenn allra iðkenda í Júdódeild Ármanns, 15 ára og yngri.  Þar býðst foreldrum tækifæri til að fara yfir farinn veg og hafa áhrif á framhaldið.  Fundurinn verður haldinn í hátíðarsal Laugabóls.

Við vonumst til að sem flest ykkar sjái sér fært að mæta, fá sér kaffi og kleinu og ræða málin.

LAST_UPDATED2
 
«ByrjaFyrra12345678910NæstaEndir»

Síða 1 af 13