|
Júdó er frábært sport sem hentar þér. Hjá Júdódeild Ármanns æfir fólk á öllum aldri, frá 4 ára og uppúr, byrjendur og besta keppnisfólk landsins. Áherslunar eru undir þér komnar. Hvort sem þú villt stunda skemmtilega og öfluga líkamsrækt eða reyna að ná langt á keppnisvellinum. Júdó er íþrótt sem reynir á úthald, liðleika, úthald, tækni og andlegan styrk og býr auk þess yfir frábærri sjálfsvarnartækni.
Æfingar á haustmisseri hefjast mánudaginn 30.8. skv. tímatöflu. Yngstu börnin (4-5 ára) fá að kynnast íþóttinni í hreyfingu og leik. Börn 6-9 ára og 10-13 ára læra undirstöðuaðtriði og auka færni sína, rækta sál og líkama með hollri hreyfingu. Unglingar 13-16 ára læra líka undirstöðuatriði og auka við getu sína og færni. Auk þess er lögð rík áhersla á aga í formi virðingar fyrir þjálfurum, félögum og umhverfi. Fullorðnir og einstaklingar eldri en 16 ára fá tækifæri til að stunda frábæra líkamsrækt í formi tækni-, þrek- og styrktarþjálfunar hvort sem áherslan er á heilsubót og skemmtun eða kepppnismennsku. Kynntu þér efnið að heimasíðunni okkar og skráðu þig í júdó. Sendu fyrirspurn ef þú vilt vita meira. Kíktu líka við hjá okkur í Laugabóli og spjallaðu við þjálfara og aðra sem eru á staðnum. Velkomin í júdó hjá Júdódeild Ármanns. |
|
|
Laugardagur, 28 Ágúst 2010 14:05 |
|
Nú er starfið að fara á fulla ferð aftur. Allir flokkar fara á fulla ferð skv. tímatöflu frá og með mánudeginum 30.8.2010. |
|
Miðvikudagur, 12 Maí 2010 22:41 |
Norðurlandamótið í júdó fór fram í Laugardalshöllinni helgina 8. – 9. maí. Íslendingar eignuðust 4 Norðurlandameistara og unnu að auki til fjölda annarra verðlauna.
|
|
LAST_UPDATED2 |
|
Lesa meira...
|
|
Miðvikudagur, 17 Mars 2010 22:10 |
|
Aðalfundur Glímufélagsins Ármanns fer fram þann 24. mars næstkomandi. Á fundinum fer fram kjör til stjórnar félagsins. Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í störfum stjórnar er bent á að senda póst á formann uppstillingarnefndar, Vilborgu í pósti 6903458(hjá)gmail.com. Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi okkar öfluga félags eru hvött til að hafa samband og bjóða fram krafta sína. |
|
LAST_UPDATED2 |
|
|
Sunnudagur, 25 Júlí 2010 16:16 |
|
Æfingabúðir í Back-hold og Gouren dagana 3.-5.sept 2010 í Ármannsheimilinu Skell
Dagana 3.-5. september næstkomandi mun Glímusamband Íslands í samstarfi við Glímufélagið Ármann standa fyrir æfingabúðum í Keltneskum fangbrögðum, þ.e. Back-hold og Gouren.
Í Gouren verður hinn Franski Bertrand Le Hellaye þjálfari. Bertrand hefur þjálfað í mörg ár á vegum Franska Gourensambandsins og verið þjálfari á mörgum alþjóðlegum æfingabúðum. Back-hold þjálfari verður Englendingurinn David Atkinson margfaldur alþjóðlegur meistari og einn tæknilega besti Back-hold maður heimsins í mörg ár. Skráning: Ath að skrá sig fyrir 10. ágúst!
Þeir sem vilja taka þátt í þessum æfingabúðum og nýta sér þekkingu og reynslu þessara frábæru þjálfara er bent á að skrá sig hjá Glímusambandi Íslands á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 893-3707 fyrir 10.ágúst næstkomandi. Þátttökugjald er 5000 kr. Júdómenn úr Ármanni athugið: Júdómönnum úr Ármanni er boðið á æfingabúðirnar sér að kostnaðarlausu. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að láta þetta frábæra tækifæri ekki fram hjá sér fara! |
|
Mánudagur, 12 Apríl 2010 22:41 |
Íslandsmótið í júdó var haldið í Laugardagshöll laugardaginn 10. apríl síðastliðinn. Það er skemmst frá því að segja að Ármenningar stóðu sig frábærlega á mótinu og unnu til hvorki meira né minna en þriggja fjórðu allra gullverðlauna eða 9 af 12 mögulegum!
|
|
Lesa meira...
|
|
Fimmtudagur, 11 Mars 2010 21:27 |
|
Mánudaginn 15. mars kl. 18:00 verður fundur fyrir foreldra/forráðamenn allra iðkenda í Júdódeild Ármanns, 15 ára og yngri. Þar býðst foreldrum tækifæri til að fara yfir farinn veg og hafa áhrif á framhaldið. Fundurinn verður haldinn í hátíðarsal Laugabóls. Við vonumst til að sem flest ykkar sjái sér fært að mæta, fá sér kaffi og kleinu og ræða málin. |
|
LAST_UPDATED2 |
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 13 |