|
Þriðjudagur, 12 Maí 2009 12:15 |
|
Anna Soffía Víkingsdóttir og Bjarni Skúlason unnu til bronsverðlauna á Norðurlandamótinu í júdó sem fór fram 9.-10. maí síðastliðinn. Í ungmennaflokki unnu Sævar Róbertsson og Ásgeir Þórsson úr JR til siflurverðlauna og Helga Hansdóttir, KA til bronsverðlauna. 
Anna varð efst í sínum riðli en tapaði fyrir eistneskri stelpu í undanúrslitum og Bjarni tapaði fyrir einum sterkasta júdómanni heims Alexei Budolin frá Eistlandi. Nánari úrslit og upplýsingar um keppnina má sjá hérna |
|
LAST_UPDATED2 |
|
|
Mánudagur, 11 Maí 2009 21:05 |
|
Síðasta mót keppnistímabilsins á Íslandi fór fram laugardaginn 2. maí 2009. Þátttakenndur voru 73 frá 6 félögum og Ármenningar stóðu sig að vanda vel. Aron Gylfi Svavarsson vann til gullverðlauna í flokki U17 -73kg, Jóhann Karl Hallsson í U17 -81kg og Stefán Ingi Ómarsson í U20 -60kg. Aðrir verðlaunahafar úr röðum Ármenninga voru Valdimar Miguel Þórsson (U13, -42kg) og Elías Örn Halldórsson (U15, -66kg) með silfur og Gunnar Sundby (U13, -42kg), Ísak Örn Ívarsson (U13, -46kg), Elís Mar Guðnýjarson (U15, -55kg), Kristján Örn Hansson (U15, -60kg) og Marcin Janebowicz (U20, -55kg) fengu brons. Öll nánari úrslit má sjá hér að neðan. |
|
LAST_UPDATED2 |
|
Lesa meira...
|
|
Laugardagur, 25 Apríl 2009 01:01 |
|
Ármenningar komu sáu og sigruðu á fyrri hluta Íslandsmóti JSÍ sem fram fór í kvöld (24.4.2009). Flest gullverðlaun allra liða eða 7 féllu í skaut Ármenninga og þeir sigruðu í öllum þeim flokkum sem þeir tóku þátt í. Margrét Bjarnadóttir sigraði í -63kg flokki kvenna og fékk brons í opna flokkunum. Soffía Víkingsdóttir hélt sigurgöngu sinni áfram og sigraði í -70kg flokki kvenna og síðan opna flokkin líka eftir spennandi glímu við Gígju Guðbrandsdóttur. Einn af hápunktum kvöldsins var þegar Sveinbjörn Jun Iura sigraði í Jón Þór Þórarinsson í úrslitaglímu í -81kg flokki. Bjarni Skúlason sigraði í -90kg flokki og Guðmundur Sævarsson sigraði í -100kg flokki. Annar af hápunktum kvöldsins var þegar Þorvaldur Blöndal sigraði í Þórmóð Jónsson í úrslitaglímu í +100kg flokki. Myndir frá fyrri hluta mótsins má sjá hérna.
|
|
LAST_UPDATED2 |
|
Lesa meira...
|
|
Sunnudagur, 05 Apríl 2009 22:55 |
|
Vormót JSÍ fór fram síðastliðinn laugardag, 4.4.2009 í Skelli. Ármenningar stóðu sig að vanda vel og unnu m.a. til fernra gullverðlauna. Gullverðlaunahafar Ármenninga voru þau Anna Soffía Víkingsdóttir, Stefán Ingi Ómarsson, Vignir Grétar Stefánsson og Bjarni Skúlason. En Rihard Jansons, Birgir Páll Ómarsson, Guðmundur Sævarsson unnu allir til silfurverðlauna og Björn Sigurðsson fékk brons. Myndir frá keppninni má sjá hérna en myndbandssyrpu má sjá að neðan. Einnig eru úrslit flestra flokka birt hér að neðan en þau verða uppfærð um leið og JSÍ birtir þau.
|
|
LAST_UPDATED2 |
|
Lesa meira...
|
|
|
Mánudagur, 27 Apríl 2009 00:07 |
|
Ármenningar sýndu það og sönnuðu enn einu sinni á Íslandsmótinu um helgina (24.-25.4.2009) að þeir eru langsterkasti júdóklúbbur landsins. Kokteill sem inniheldur bestu þjálfara landsins, góðan liðsanda, bestu aðstöðu landsins og frábært júdófólk skilaði þeim 10 gullverðlaunum (áttu keppendur í 12 flokkum) auk fjölda silfur- og bronsverðlauna. Í seinni hluta mótsins sigraði Axel Kristinsson í -60kg flokki og Bjarni Skúlason í opnum flokki. Deginum lauk síðan á sama hátt og í fyrra þegar Þorvaldur Blöndal sigraði Þormóð Jónsson í úrslitaglímu í sveitakeppninni. Myndir frá seinni hluta mótsins má sjá hérna og öll nánari úrslit ásamt myndbandssyrpu má sjá hér að neðan.
|
|
LAST_UPDATED2 |
|
Lesa meira...
|
|
Fimmtudagur, 23 Apríl 2009 13:37 |
|
Íslandsmót JSÍ fer fram í Skelli um helgina. Tímaáætlun er eftirfarnandi. Föstudagur 24. apríl frá kl. 19-22 Karlar +100 kg, -100 kg, -90 kg, -81 kg. Konur -57 kg, -63 kg, -70 kg, -78 kg, Opinn flokkur og sveitakeppni. Laugardagur 25.apríl frá kl. 9:00 til 14:00 Karlar -60 kg, -66 kg, -73 kg, Opinn flokkur og sveitakeppni. Einstaklingskeppnin er ca. frá 9-11:30 og hefst þá sveitakeppnin sem stendur yfir í rúmlega 1 1/2 tíma. ATHUGIÐ að það verður keppt á tveimur völlum og ekki endilega í ofangreindri röð. Nánari upplýsingar á heimasíðu JSÍ |
|
Mánudagur, 30 Mars 2009 12:16 |
|
2. umferð Bikarkeppni JSÍ 2009 fór fram síðastliðinn laugardag, 28.3.2009 í Skelli. 8 lið höfðu áunnið sér þátttökurétt í þessari umferð, 3 frá JR, 2 frá Ármanni og eitt frá KA, ÍR og Selfossi. Keppt var í tveimur riðlum og þrjú lið úr hvorum riðli komust áfram í 3. umferð. Ármenningar mættu vel stemmdir til leiks og stemmningin í liðinu var frábær. Árangurinn var líka eftir því þar sem bæði lið Ármenninga sigruðu sína riðla og áunnu sér þar með öruggt sæti í næstu umferð. Myndbandssyrpu með frábærum júdótöktum Ármenninga má sjá hér að neðan. Önnur lið sem komust áfram voru öll þrjú lið JR og lið KA en lið ÍR og Selfoss duttu út. Myndir frá keppninni má sjá hérna.
|
|
LAST_UPDATED2 |
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
|
|
Síða 6 af 13 |