Á döfinni

<<  September 2010  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Nýlegar myndir

Innskráning



Velkomin á ippon.is
Ármenningar með yfirburði í bikarnum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 30 Mars 2009 12:16

Sveinbjörn Jun Iura á 2. umferð Bikarkeppni JSÍ 20092. umferð Bikarkeppni JSÍ 2009 fór fram síðastliðinn laugardag, 28.3.2009 í Skelli.  8 lið höfðu áunnið sér þátttökurétt í þessari umferð, 3 frá JR, 2 frá Ármanni og eitt frá KA, ÍR og Selfossi. Keppt var í tveimur riðlum og þrjú lið úr hvorum riðli komust áfram í 3. umferð.  Ármenningar mættu vel stemmdir til leiks og stemmningin í liðinu var frábær. Árangurinn var líka eftir því þar sem bæði lið Ármenninga sigruðu sína riðla og áunnu sér þar með öruggt sæti í næstu umferð. Myndbandssyrpu með frábærum júdótöktum Ármenninga má sjá hér að neðan.  Önnur lið sem komust áfram voru öll þrjú lið JR og lið KA en lið ÍR og Selfoss duttu út. Myndir frá keppninni má sjá hérna.

 

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
2. umferð í bikarnum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 26 Mars 2009 11:47

2. umferð í bikarkeppni JSÍ fyrir keppendur 15 ára og eldri fer fram á laugardaginn (28.3.2009) í Skelli. Mótið hefst kl. 10.00 og áætluð mótslok eru um 12:30.  8 lið (1 frá ÍR, Selfossi og KA, 2 frá Ármanni og 3 frá JR) munu keppa um 6 laus sæti í 3. umferð bikarkeppninnar sem fram fer í haust. Vigtun verður á mótsstað frá 9:00-9:30.

Sameiginleg æfing verður síðan í Skelli frá 14-16.

 
Íslandsmót juniora og bikarkeppni U15 um helgina Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 12 Mars 2009 13:59

Nú á laugardaginn 14. mars fer fram Íslandsmót juniora (U20) í Skelli, húsnæði Júdódeildar Ármanns í Laugardalnum.  Vigtun fer fram hjá hverju og einu félagi á föstudagskvöldið (13.3.) milli 18-19 en keppni hefst stundvíslega kl. 9 á laugardagsmorgun.  Skráðir þátttakendur eru um 200 sem er töluverð fjölgun síðan í fyrra og því verður keppt á þremur völlum og reynt verður að láta mótið ganga hratt og örugglega fyrir sig. Dagskrá mótsins má sjá hér að neðan.

Á sunnudaginn (15. mars) fer síðan fram önnur umferð bikarkeppni JSÍ fyrir keppendur yngri en 15 ára.  Keppninn fer fram hjá JR í Ármúla 17a og hefst kl. 10:00. Lið frá Grindavík, ÍR, Ármanni, JR og KA er skráð til leiks.

 

Lesa meira...
 
Innanfélagsmót Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 05 Mars 2009 13:37

Laugardaginn 7. mars nk. verður haldið innanfélagsmót fyrir júdóiðkenndur hjá Ármanni yngri en 15 ára. Keppt verður í aldurs- og þyngdarflokkum.  Allir yngri en 10 ára fá verðlaunapening en keppt verður um sæti hjá 10 ára og eldri. Keppnisgjald er 500 kr. en þeim peningum verður varið í kaup á verðlaunapeningum og til að gleðja krakkana á einhvern hátt.

Keppni hefst kl. 12:00 og eru börn og foreldrar minntir á að mæta tímanlega.

Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að koma og styðja við bakið á krökkunum og minnt er á facebook grúbbu foreldrafélagsins.

Nánari upplýsingar og skráning hjá Tryggva Gunnarssyni, s. 617 7612, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

LAST_UPDATED2
 
Júdóhelgi hjá unglingunum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 16 Mars 2009 18:44

Íslandsmót juniora, 14.3.2009Eins og áður hefur komið fram var Íslandsmót juniora haldið um helgina og eins var keppt í annari umferð bikarkeppninnar í 13-14 ára aldursflokki. Íslandsmótið fór vel fram, keppt á þremur völlum samtímis og umgjörðin öll hin glæsilegasta. Ármenningar meðal keppenda hefðu gjarnan mátt vera fleiri en þeir sem kepptu stóðu sig frábærlega.  Stefán Ingi Ómarsson varð tvöfaldur Íslandsmeistari eins og í fyrra, þ.e. bæði í U17 og U20. Aðrir Íslandsmeistarar úr röðum Ármenninga voru Róbert Óliver Bjarnason (U13), Aníta Eir Sævarsdóttir (U13), Örn Leó Jóhannsson (U17) og Tómas Helgi Tómasson (U20). Öll nánari úrslit ásamt myndbandi með nokkrum glæsitilþrifum Ármenninga má sjá hér að neðan.  Myndir frá keppnini má sjá hérna.

Gengi Ármenninga í bikarkeppninni var ekki eins gott enda mættu aðeins þrír einstaklingar úr þeirra röðum til keppni.  Ármenningar duttu út en þrjú lið frá JR og eitt frá KA, ÍR og Grindavík komust áfram í þriðju umferð.

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
Innanfélagsmót Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 09 Mars 2009 23:15
Skemmtilegt innanfélagsmót fyrir krakka yngri en 15 ára var haldið síðastliðinn laugardag (6.3.2009).  Stór hópur af yngstu kynslóðinni (8 ára og yngri) tók þátt og var einstaklega gaman að fylgjast með þeim.  Einnig var gaman að fylgjast með þeim níu krökkum á aldrinum 9-10 ára sem mættu til leiks og glímdu af miklu kappi og stóðu sig með ágætum. Hjá 11-12 ára krökkum tók Aníta Sævarsdóttir félaga sína Ísak og Alexander Áka í kennslustund og sigraði örugglega. Í aldurshópnum 13-14 ára voru líka 3 keppendur en svo vildi til að hver sigraði annan á víxl og enduðu því allir í 1-3 sæti. Myndir frá mótinu má sjá hérna.
 
Ármenningar frábærir í bikarnum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 28 Febrúar 2009 22:28

Sveinbjörn Jun Iura í 1. umferð bikarkeppni JSÍ, 28.2.2009Ármenningar sendu tvö lið til keppni í 1. umferð bikarkeppni JSÍ sem fram fór 28.2.2009 í húsnæði JR í Ármúlanum.  Skemmst er frá því að segja að allar glímur unnust á fullnaðarsigri og þar með tryggðu bæði lið sér öruggann sigur í sínum riðlum og keppnisrétt í 2. umferð sem fram fer í maí.  Lið Ármanns voru annars vegar skipuð þeim Stefáni Jökli Sigurðssyni, Tómasi Helga Tómassyni, Sveinbirni Jun Iura, Bjarna Þór Margrétarsyni og Birni Sigurðssyni og hins vegar Axel Kristinssyni (sérstaklega ánægjulegt að fá hann aftur á keppnisvöllinn), Eysteini Finnssyni, Birgi Pál Ómarssyni, Vigni Grétari Stefánssyni og Bjarna Skúlasyni. Nokkrar myndir frá keppninni má finna hérna og nánari úrslit ásamt myndskeiði með glæsitilþrifum má sjá hér að neðan.

 

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
«ByrjaFyrra12345678910NæstaEndir»

Síða 7 af 13