Á döfinni

<<  September 2010  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Nýlegar myndir

Innskráning



Velkomin á ippon.is
KYU-mót og dómaranámskeið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 16 Febrúar 2009 11:16

Nú á laugardaginn, 14.2.2009, fór fram KYU-mót og dómaranámskeið í húsnæði ÍR í Breiðholtinu.  Ármenningarnir Sveinbjörn Jun Iura, Baldur Örn Halldórsson, Aron Gylfi Svavarsson og Örn Leó Jóhannsson unnu til gullverðlauna á mótinu en aðrir verðlaunahafar úr hópi Ármenninga voru þeir Helgi Þór Arason, Þráinn Kolbeinsson, Eyþór Björgvinsson,  Alexander Már Brynjarsson, Jóhann Karl Hallsson, Valdimar Mikuel Þórsson, Gunnar Sundby og Ísak Örn Ívarsson. Nánari úrslit og stutt myndband með góðum töktum má sjá hér að neðan

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
Aðalfundur Júdódeildar Ármanns Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 14 Febrúar 2009 20:33
Aðalfundur Júdódeildar Ármanns verður haldinn þriðjudaginn 24. febrúar klukkan 20:30. Dagskrá fundarins er þessi:
 
  1. Fundarsetning. 
  2. Stjórn tilnefnir fundarstjóra og fundarritara. 
  3. Formaður flytur skýrslu um störf deildarinnar á liðnu starfsári. 
  4. Gjaldkeri leggur fram reikninga deildarinnar til samþykkis. 
  5. Kjör stórnar
  6. Önnur mál.

Fundurinn fer fram í hátíðarsal Ármanns og Þróttar í Laugabóli og verður boðið upp á kaffi og með því. Við hvetjum alla iðkendur, forráðamenn og velunnara Júdódeildarinnar til að mæta.
 
Stjórnin

 
Bikarkeppni JSÍ U15 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 06 Febrúar 2009 12:08
1. umferð í bikarkeppni JSÍ fyrir börn yngir en 15 ára fer fram nú á laugardaginn, 7.2.2009.  Keppnin fer fram í húsnæði JR í Ármúla 17 og hefst kl. 11:00.
 
Anna og Bjarni með tvö gull á Afmælismóti JSÍ Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 24 Janúar 2009 21:25

Bjarni, Óskar, Helgi, Björn, Jón Gunnar, Birgir Páll, Stefán Ingi, Anna Soffía, Sveinbjörn og TómasTveir bestu júdómenn landsins um þessar mundir, Ármenningarnir Anna Soffía Víkingsdóttir og Bjarni Skúlason unnu bæði sína þyngdarflokka og opnu flokkana á Afmælismóti JSÍ í dag (laugardag 24.1.2009).  Mótið fór fram í Skelli bardagasal Ármanns og fór í alla staði vel og skipulega fram.  Önnur helstu úrslit voru þau að Helga Hansdóttir (KA) sigraði í -63kg flokki kvenna, Leó Jóhannsson (JR) sigraði í -60kg flokki karla, Björn Halldór Óskarsson (ÍR) sigraði í -66kg flokki karla, Kristján Jónsson (JR) sigraði í -73kg flokki karla, Birgir Páll Ómarsson (Ármanni) sigraði í -73kg flokki karla, Jón Gunnar Björgvinsson (Ármanni) sigraði í -100kg flokki karla og Þormóður Jónsson (JR) sigraði í +100kg flokki karla. Myndir frá mótinu má sjá með því að smella hérna, myndband með nokkrum góðum töktum má sjá hér að neðan ásamt nánari úrslitum.

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
Strákarnir komust áfram Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 09 Febrúar 2009 10:11

Ísak með andstæðing sinn í öruggu fastataki

 

1. umferð í bikarkeppni JSÍ U15 fór fram nú um helgina.  12 lið kepptu í 4 riðlum og 8 þeirra komust áfram í 2. umferð.  Ármannsstrákar stóðu sig vel og sigruðu lið Selfoss-b örugglega en töpuðu naumlega fyrir liði JR-b.  Þetta dugði þeim til að komast áfram í 2. umferð keppninnar sem fram fer í apríl.  Nokkrar myndir frá mótinu má sjá hérna. Önnur lið sem komust áfram voru ÍR-a, KA-a, KA-b, JR-a, JR-b, JR-c og Grindavík. Nánari úrslit má sjá hér að neðan.

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
Afæmlismót 2009 - juniorar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 26 Janúar 2009 01:44

Örn Leó Jóhannsson og Rihard Jansons á Afæmlismóti JSÍ 2009Keppni juniora á Afmælismóti JSÍ 2009 fór fram í gær (sunnudag, 25.1.2009).  Okkar menn stóðu sig vel að vanda þótt þeir hefðu mátt vera fleiri.  Rihard Jansson sigraði í sínum þyngdarflokki bæði í keppni 15-16 ára og 15-19 ára, Elís Mar Jóhannesson sigraði í -46kg flokki í keppni 13-14 ára, Eysteinn Finnsson og Örn Leó Jóhannsson hlutu silfurverðlaun í sínum flokkum og Björn Halldórsson og Valdimar Mikuel Þórsson unnu til bronsverðlauna.  Myndir frá keppninni má sjá hérna og stutt myndband með nokkrum góðum töktum hjá Rihard og Eysteini má sjá hér að neðan ásamt nánari úrslitum úr keppni juniora

 

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
Afmælismót JSÍ 2009 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 23 Janúar 2009 09:09

Afmælismót JSÍ fer fram nú um helgina 24. og 25. janúar 2009.  Keppni fullorðinna (15 ára og eldri) fer fram í Skelli húsnæði Júdódeildar Ármanns laugardaginn 24. jan og hefst kl. 11:00 en keppni barna og unglinga (11-12 ára, 13-14 ára 15-16 ára og 15-19 ára) fer fram í húsnæði JR í Ármúla á sunnudag 25. jan og hefst keppni kl. 10:00.

 Svo skemmtilega vill til að JSÍ er búinn að setja tilkynningu um mótið og dagskrá þess á heimasíðu sína og má sjá með því að smella hérna.

Ætla má að menn og konur mæti spræk til leiks eftir vel heppnað mót um síðustu helgi en aðrir mæti vel út hvíldir.

 

ATH. vegna mótsins verður krílatími kl. 9:00-9:50 í fimleikasal á efstu hæð Laugabóls

LAST_UPDATED2
 
«ByrjaFyrra12345678910NæstaEndir»

Síða 8 af 13