Á döfinni

<<  Mars 2010  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
   1  2  3  4  5  6
  7  8  910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   

Nýlegar myndir

Innskráning



Velkomin á ippon.is
Íslandsmótið í Brasílísku Jiu jitsu (BJJ) Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 05 Nóvember 2008 23:08

Sunnudaginn 26.10.2008 fór fram fyrsta Íslandsmótið í Brasílísku Jiu jitsu (BJJ) á vegum nýstofnaðs BJJ sambands Íslands í bardagsalnum okkar í Laugabóli.  BJJ er bardagaíþrótt sem er að sumu leyti skild júdó nema hvað baráttan fer aðallega fram í gólfinu og menn vinna á stigum eða með því að láta andstæðingin gefast upp vegna hengingartaks eða láss.  Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá mótinu en úrslit mótsins má finna á heimasíðu BJJ sambandsins 

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
Reykjavíkurmót - seinni hluti Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 26 Október 2008 15:22

Anna Soffía á Reykjavíkurmóti 2008

Seinni hluti Reykjavíkurmótsins fór fram í gær (25.10.2008) í ÍR húsinu.  Mótið var frekar fámennt en fór vel fram.  Einstaklega fámennt var í röðum Ármenninga og raunar var Anna Soffía Víkingsdóttir eini keppandi okkar í fullorðinsflokki.  En þeir sem tóku þátt stóðu sig mjög vel.  Rihard Jansons sigraði örugglega í sínum flokki (TD-60)

og Anna Soffía einnig (K-78) eftir tvær harðar rimmur við Árdísi Ósk Steinarsdóttur (JR) og þeir Róbert Óliver Bjarnason og Alexander Áki Einarsson unnu til bronsverðlauna (BD-50).

Sería af myndum af mótinu má sjá hérna.  Einnig má geta þess að sjónvarpið var á staðnum og fjallaði aðeins um mótið í sjónvarpsfréttum kl. 19 25.10.2008 (sjá hérna).

Smelltu á "lesa meira" til að sjá töflu með endanlegum úrslitum mótsins

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
Skemmtileg júdómyndbönd Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 22 Október 2008 17:43

Í haust tók Þorvaldur Blöndal þjálfari meistaraflokks uppá því að taka kerfisbundið upp glímur hjá félögum í JDÁ. Þessu er síðan safnað saman og nýtt við æfingar, bæta úr því sem betur mætti fara og nýta það sem vel gengur. Bræðurnir Birgir Páll og Stefán Ingi Ómarssynir hafa nú sett saman 2 flott myndbönd úr upptökum frá haustmóti JSÍ þar sem Ármenningar fóru á kostum eins og áður hefur komið fram.  Smelltu á "lesa meira" til að horfa á þessi myndbönd.

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
Haustmót JSÍ Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 05 Október 2008 21:13

Haustmót JSÍ var haldið um helgina hjá Júdódeild Ármanns. Margar spennandi viðureignir voru háðar og megum við Ármenningar vera stoltir af okkar fólki. Að þessu sinni var það yngri kynslóðin sem hélt merki okkar á lofti en í hóp okkar vantaði gamla jaxla á borð við Vigni, Valda, Bjarna Skúla o.fl.



Smellið á "lesa meira" til að sjá nánari úrslit og stutt video með glæsilegur kasti Sveinbjörns Iura

 

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
Reykjavíkurmótið hafið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 24 Október 2008 20:27

verðlaunahafar í U20, -90kg flokki á Reykjavíkurmóti 2008

 Reykjavíkurmótið hófst í kvöld (24.10.2008) með keppni í U20, -66kg og U20, -90kg.  Okkar menn Stefán Ingi Ómarsson og Eysteinn Finnsson börðust um gullið í -66kg flokknum og hafði Eysteinn sigur eftir harða og tvísýna rimmu en Stefán varð að sætta sig við silfrið.

Okkar þriðji maður á staðnum var Baldur Halldórsson sem byrjaði að æfa júdó fyrir örfáum vikum. Hann stóð sig líka frábærlega og vann til silfurverðlauna í -90kg flokknum.

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
Foreldrafélag JDÁ Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 15 Október 2008 21:58

frá foreldrafundi 15.10.2008Miðvikudagskvöldið 15. okt 2008 var haldinn fundur fyrir foreldra barna sem æfa hjá Júdódeild Ármanns. Jón Gunnar Björgvinsson kynnti starfið lauslega og starfsemi deildarinnar rædd lauslega.  Sjö foreldrar mættu á fundinn auk Jóns Gunnars, Helga Björgvinssonar formanns og Yoshihiko Iura yfirþjálfara. Var tækifærið notað og foreldrafélag deildarinnar stofnað eða það endurvakið.  Sigríður Guðjónsdóttir var kjörin formaður með áttföldu húrrahrópi.

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
120 ára afmæli Ármanns Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 05 Október 2008 18:42
Glímufélagið Ármann, elsta starfandi íþróttafélag landsins, heldur upp á 120 ára afmæli sitt laugardaginn 11. október. Boðið verður til veislu í Laugabóli, nýju íþróttahúsi Ármanns og Þróttar í Laugardal.
LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
«ByrjaFyrra111213NæstaEndir»

Síða 11 af 13