Á döfinni

<<  Mars 2010  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
   1  2  3  4  5  6
  7  8  910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   

Nýlegar myndir

Innanfélagsmót Ármanns Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 20 Desember 2009 20:04

Innanfélagsmót eldri flokka var haldið hjá Ármenningum föstudaginn 18. desember. Keppt var í 3 flokkum: +95, -95 og unglingaflokki. Þátttaka var ágæt og þótti mótið heppast vel. Sérstaka athygli vakti endurkoma...

...gömlu kempunnar Gísla Jóns Magnússonar sem er júdómönnum að góðu kunnur fyrir afrek sín á vellinum hér fyrr á árum. Fór það svo að hann komst í úrslit í +95 þar sem hann mætti Þorvaldi "glussatjakk" Blöndal í úrslitum. Fór sú glíma í framlengingu og var það ekki fyrr en 4 sekúndur voru eftir af glímunni sem Þorvaldur náði að kasta Gísla og tryggja sér þar með sigur á gullskori.

 

 Annars voru úrslit mótsins sem hér segir:

Unglingar:
1. Aron  Gylfi Svavarsson
2. Kristján Þór Hansson
3. Jóhann Karl Hallsson

-95
1. Tómas Helgi Tómasson
2. Snær Seljan Þóroddsson
3. Eysteinn Finnsson

+95
1. Þorvaldur Blöndal
2. Gísli Jón Magnússon
3. Heimir Haraldsson

Myndband með nokkrum góðum tilþrifum er hérna.