Á döfinni

<<  Mars 2010  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
   1  2  3  4  5  6
  7  8  910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   

Nýlegar myndir

Sameiginleg æfing laugardag 6.2.2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 05 Febrúar 2010 00:24
Eftirfarandi tilkynning var að berast frá landsliðsþjálfurum:

Sameiginleg æfing 15 ára og eldri verður haldin 6. febrúar þ.e. næsta laugardag.
Æfingin fer fram hjá Júdódeild Ármanns í Laugardal og hefst kl. 10.


Við val í landslið verður meðal annars tekið tillit til mætinga á sameiginlegar æfingar.

Norðurlandamótið verður hér á landi 8 og 9 maí næstkomandi og er markmið okkar að vinna þar til verðlauna.

Fram að NM verða nokkrar sameiginlegar æfingar og einnig er hugmyndin að taka þátt í einu til tveimur verkefnum erlendis (mót og æfingabúðir) fyrir seniora og einu fyrir U20 og U17. Ekki hefur verið ákveðið hvaða verkefni þetta verða en það æti að verða ljóst innan nokkurra daga en auðvitað fer það eftir fjárhag JSÍ hvort af því verður og hvernig styrkjum verður háttað.

Vonumst til að sjá sem flesta á laugardag , alla vega þá sem gefa kost á sér í landslið.

Landsliðsþjálfarar
Bjarni Friðriksson
Axel Ingi Jónsson
Bjarni Skúlason
Víkingur Víkingsson