|
Hin frækna júdókona Anna Soffía Víkingsdóttir úr Ármanni heldur áfram að gera það gott. Í dag var tilkynnt um 11 íþróttamenn sem tilnefndir hafa verið sem íþróttamenn Reykjavíkur 2009 og eins og búast mátti við var Anna Soffía þar á meðal.
Önnu Soffíu er heiður sýndur með tilnefningunni og er ánægjulegt að sjá að árangur hennar vekur athygli utan júdóheimsins sem innan. Einnig er ánægjulegt að Anna Soffía er ekki eini Ármenningurinn sem hlýtur tilnefningu, heldur eru þeir þrír úr þessum ellefu manna hópi og allt eru það kvenmenn. Það er því augljóst að enginn skortur er á kvenskörungum í okkar öfluga og vaxandi félagi. Þá er og gleðiefni að í þessum hóp eru tveir júdómenn því JR-ingurinn Þormóður Árni Jónsson er einnig tilnefndur. Nöfn þeirra sem eru tilnefndir:
1. Anna Soffía Víkingsdóttir, júdókona úr Ármanni
2. Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni.
3. Ásgeir Sigurgeirsson, skotíþróttamaður úr Skotfélagi Reykjavíkur.
4. Eyþór Þrastarson, sundmaður úr Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík.
5. Guðmundur Stephensen, borðtennismaður úr Víkingi.
6. Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni.
7. Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður úr Sundfélaginu Ægi.
8. Katrín Jónsdóttir, knattspyrnukona úr Knattspyrnufélaginu Val.
9. Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona úr Knattspyrnufélagi Reykjavíkur.
10. Sonja Sigurðardóttir, sundkona úr Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík.
11. Þormóður Jónsson júdómaður úr Júdófélagi Reykjavíkur.
|