Á döfinni

<<  September 2010  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Nýlegar myndir

Ásdís Hjálmsdóttir íþróttamaður Reykjavíkur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 18 Febrúar 2010 21:23

Það var góður dagur hjá Ármenningum í dag þegar Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari var kjörin Íþróttamaður Reykjavíkur árið 2009. Tvær aðrar Ármannsfreyjur, júdókonan Anna Soffía Víkingsdóttir og frjálsíþróttakonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir, voru einnig tilnefndar. Kjörinu var lýst af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra í Höfða í dag.

 Við sama tilefni var útdeilt styrkjum til íþróttastarfs frá ÍTR og hlutu júdó- frjálsíþrótta- fimleika- sund- og skíðadeildir Ármanns styrki vegna góðs starfs á nýliðnu ári.

Það ber vott um hið góða starf sem unnið er innan Ármanns að 3 af 11 tilnefningum fóru til Ármenninga og megum við vera stolt af því. Þá er og skemmtilegt að 2 júdómenn hlutu tilnefningu því auk Önnu Soffíu þá var Þormóður Árni Jónsson úr JR tilnefndur sem íþróttamaður Reykjavíkur.

Mynd: Helga Margrét, Ásdís, Anna Soffía.