Á döfinni

<<  September 2010  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Nýlegar myndir

almennar fréttir
Hauststarfið að hefjast Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 28 Ágúst 2010 14:05
Nú er starfið að fara á fulla ferð aftur. Allir flokkar fara á fulla ferð skv. tímatöflu frá og með mánudeginum 30.8.2010. 
 
Maya Staub Norðurlandameistari! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 12 Maí 2010 22:41

Norðurlandamótið í júdó fór fram í Laugardalshöllinni helgina 8. – 9. maí. Íslendingar eignuðust 4 Norðurlandameistara og unnu að auki til fjölda annarra verðlauna. 


Lesa meira...
 
Aðalfundur og skýrsla stjórnar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 28 Febrúar 2010 22:18

Aðalfundur Júdódeildar Ármanns fyrir starfsárið 2009-2010 var haldinn í hátíðarsal Laugabóls 25.2.2010. Kynnt var skýrsla stjórnar sem finna má hér, reikningar deildarinnar kynntir og kjörin stjórn fyrir næsta starfsár.

Lesa meira...
 
Ásdís Hjálmsdóttir íþróttamaður Reykjavíkur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 18 Febrúar 2010 21:23

Það var góður dagur hjá Ármenningum í dag þegar Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari var kjörin Íþróttamaður Reykjavíkur árið 2009. Tvær aðrar Ármannsfreyjur, júdókonan Anna Soffía Víkingsdóttir og frjálsíþróttakonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir, voru einnig tilnefndar. Kjörinu var lýst af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra í Höfða í dag.

Lesa meira...
 
Anna Soffía tilnefnd sem íþróttamaður Reykjavíkur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 16 Febrúar 2010 21:23

Hin frækna júdókona Anna Soffía Víkingsdóttir úr Ármanni heldur áfram að gera það gott. Í dag var tilkynnt um 11 íþróttamenn sem tilnefndir hafa verið sem íþróttamenn Reykjavíkur 2009 og eins og búast mátti við var Anna Soffía þar á meðal.

 

Önnu Soffíu er heiður sýndur með tilnefningunni og er ánægjulegt að sjá að árangur hennar vekur athygli utan júdóheimsins sem innan.

 

 Einnig er ánægjulegt að Anna Soffía er ekki eini Ármenningurinn sem hlýtur tilnefningu, heldur eru þeir þrír úr þessum ellefu manna hópi og allt eru það kvenmenn. Það er því augljóst að enginn skortur er á kvenskörungum í okkar öfluga og vaxandi félagi.

 

Þá er og gleðiefni að í þessum hóp eru tveir júdómenn því JR-ingurinn Þormóður Árni Jónsson er einnig tilnefndur.

 

Nöfn þeirra sem eru tilnefndir:

Lesa meira...
 
Vilt þú leggja hönd á plóg? Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 11 Febrúar 2010 22:13
Það eru mörg handtök sem þarf að inna af hendi við uppbyggingu og rekstur öflugrar júdódeildar og eru þau meira og minna unnin í sjálfboðastarfi. Þessi störf eru af fjölbreyttum toga og eru unnin af stjórn félagsins, þjálfurum, starfsmönnum á mótum o.fl.
Lesa meira...
 
«ByrjaFyrra12345678910NæstaEndir»

Síða 1 af 10